Um okkur
Markmið
Dansk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað á Børsen í Kaupmannahöfn þann 27. apríl 2000. Markmið þess er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Danmerkur og Íslands.
Sjá samþykktir ráðsins hér.
Stjórn
Formaður: Sverrir Sverrisson, EC Consulting
Stjórnarmenn á Íslandi:
- Arnar Gíslason, Bako - Ísberg.
- Bjarni Ó. Halldórsson, Aalborg Portland
- Lárus S. Ásgeirsson, Icelandic Group
- Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, VJI ráðgjöf
Stjórnarmenn í Danmörku:
- Mads Elming, Ardagh Glass Holmegaard A/S
- Steen Osorio, Samskip A/S
- Peer Nørgaard, Peership
- Peter Mollerup, Logos Advokatanpartselskab
Helstu verkefni
Ráðið stendur fyrir fundum og ráðstefnum um málefni er tengjast viðskiptum á milli landanna.
Starfsemi ráðsins beinist að þvi að efla tengsl og auka viðskipti milli landanna. Ráðið á gott samstarf við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og sendiráð Danmerkur á Íslandi.
Félagar
Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í Danmörku og á Íslandi geta orðið félgar í Dansk-íslenska viðskiptaráðinu.
Félagsgjöld
Fyrirtæki og stofnanir greiða kr. 30.000 í árgjald en einstaklingar kr. 9.000.
Aðsetur og rekstur
DÍV hefur aðsetur í Húsi verslunar, Kringlunni 7, 7. hæð, 103 Reykjavík.
Daglegan rekstur annast Kristín S. Hjálmtýsdóttir kristin@chamber.is .





