Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Dansk-íslenska

3.9.2010

Jöfn keppni á stórskemmtilegu alþjóðlegu golfmóti

Í gær fór fram alþjóðlegt golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráða sem haldið var hjá Golfklúbbnum Oddi á Urriðavelli. Í fyrsta sinn var haldin keppni milli allra viðskiptaráðanna (e. Chamber Cup) þar sem þátttakendur voru skráðir í lið sem fulltrúar ákveðins millilandaráðs eða Viðskiptaráðs. Það var lið Sænsk-íslenska viðskiptaráðsins sem bar sigur úr býtum í ár, en einnig voru veitt verðlaun fyrir fyrsta til þriðja sætið. Góður keppnisandi skapaðist á milli þátttakenda, en alls tóku 24 félagar þátt í mótinu.


Lið Sænsk-íslenska viðskiptaráðsins sigraði liðakeppni golfmótsins


Eftir drengilega baráttu í ögrandi blíðskaparveðri og léttum meðvindi varð niðurstaðan sú að Gísli Hjálmtýsson endaði í 1. sæti og hlaut að launum flug með Icelandair til BNA. Tómas Már Sigurðsson hreppti 2. sætið og fékk í sinn hlut flug með Flugfélagi Íslands og í 3. sæti var Birgir Bjarnason og fékk hann gjafabréf frá verslunum NTC. Sérstakar þakkir fyrir veittan stuðning fá öll þau fyrirtæki sem studdu við mótið og einnig sendiherrar Bretlands, Danmerkur, Svíþjóðar og Þýskalands.


66°Norður

Slóðin þín:

Fréttir

Flýtileiðir

Danish Icelandic chamber of commerce

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta