Fréttir Dansk-íslenska
29.12.2009
Stjórn Dansk-íslenska öll endurkjörin
Vigdís fjallaði í erindi sínu um sögu uppbyggingar á Norður Bryggju í Kaupmannahöfn (Nordatlantens Brygge), þar sem sendiráð Íslands er meðal annars til húsa. Aðrir gestir fundarins voru þeir Sören Hanslund, nýr sendiherra Danmerkur á Íslandi og Sturla Sigurjónsson, verðandi sendiherra Íslands í Danmörku. Á dagskrá aðalfundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Öll stjórn ráðsins var endurkjörin.
DÍV mun á næstunni leggja aukna áherslu á gagnkvæm samskipti og samtal milli þjóðanna og framámanna í viðskiptum og stjórnmálum en ráðið efndi síðast til stórs fundar í Kaupmannahöfn í haust, þar sem gestir voru um 170. Var sá fundur haldinn í samvinnu við Viðskiptnetið,Nordatlantens Brygge, Det Udenrigspolitiske Selskab og Dansk-islandsk Samfund.
DÍV var stofnað árið 2000 í Húsnæði Kauphallarinnar í Kaupmannahöfn og fagnar þvi 10 ára afmæli á næsta ári. Markmið ráðsins er að viðhalda og efla viðskiptatengsl milli íslenskra og danska fyrirtækja og greiða götu félaga sinna í viðskiptum milli landanna.
Stjórn DÍV skipa:

DÍV hefur alla tíð átt náið samstarf við sendiráð Danmerkur á Íslandi og Sendiráð Íslands í Danmörku og lögðu sendiherrarnir tveir í ávörpum sínum áherslu á það mikilvæga hlutverk sem DÍV gegnir nú, eftir að aðstæður hafa breyst á fjármálamörkuðum. Væntir DÍV mikils af samstarfi við þá báða um leið og forverum þeirra, Lasse Reiman og Svavari Gestssyni, er þakkað einkar ánægjulegt samstarf og óskað velfarnaðar.
DÍV var stofnað árið 2000 í Húsnæði Kauphallarinnar í Kaupmannahöfn og fagnar þvi 10 ára afmæli á næsta ári. Markmið ráðsins er að viðhalda og efla viðskiptatengsl milli íslenskra og danska fyrirtækja og greiða götu félaga sinna í viðskiptum milli landanna.
Stjórn DÍV skipa:
Sverrir Sverrisson - Askar Capital hf. formaður, Arnar Gíslason - Bako-Ísberg, Bjarni Ó. Halldórsson - Aalborg Portland, Lárus S. Ásgeirsson - Sjóvá, Sigurður Skagfjörð Sigurðsson - Calidris, Peer Nørgaard - Peership, Mads Elming - Ardagh Glass Holmegaard A/S, Steen Osorio - Samskip A/S og Páll Pálsson - Rausn. Framkvæmdastjóri ráðsins er Kristín S. Hjálmtýsdóttir
eða undir http://www.spansk-islenska.is/files/DIV%20stjórn%20með%20VF_679088198.jpg